Notkunarleiðbeiningar fyrir Erelzi áfylltan lyfjapenna

Lestu ALLAR þessar leiðbeiningar fyrir inndælingu.

Þessar leiðbeiningar eru til að hjálpa þér að nota Erelzi áfyllta lyfjapennann á réttan hátt.

Mikilvægt er að reyna ekki að gefa þér lyfið sjálf/sjálfur fyrr en þú hefur fengið þjálfun hjá lækninum, hjúkrunarfræðingnum eða lyfjafræðingi.

Erelzi áfyllti lyfjapenninn:

Erelzi áfyllti lyfjapenni þegar hettan hefur verið tekin af. Ekki fjarlægja hettuna fyrr en þú ert tilbúin/tilbúinn að gefa lyfið.

Geymdu öskjuna með lyfjapennanum í kæli við 2 °C til 8 °C og þar sem börn hvorki ná til né sjá.

  • Ekki frysta lyfjapennann.
  • Ekki hrista lyfjapennann.
  • Ekki nota lyfjapennann ef hann hefur dottið þegar hettan var ekki á honum.

Til að inndælingin sé þægilegri skaltu taka lyfjapennann úr kælinum 15-30 mínútum fyrir inndælinguna þannig að hann nái stofuhita.

Það sem þú þarft fyrir inndælinguna:

Fylgir í öskjunni:

Nýr og ónotaður Erelzi áfyllti lyfjapenni.

Fylgir ekki í öskjunni:

  • Sprittþurrka
  • Bómullarhnoðri eða grisja
  • Ílát fyrir beitta hluti

Fyrir inndælingu:

1. Mikilvæg öryggisatriði sem þarf að skoða fyrir inndælingu:

Lausnin á að vera tær eða örlítið mjólkurlituð, litlaus til örlítið gulleit og hún kann að innihalda litlar hvítar eða hálfgagnsæjar próteinagnir. Þannig er eðlilegt útlit Erelzi.

Ekki nota lyfið ef vökvinn er skýjaður eða er upplitaður eða inniheldur stóra klumpa, flögur eða litaðar agnir.

Ekki nota lyfjapennann ef komið er fram yfir fyrningardagsetninguna.

Ekki nota lyfið ef innsiglið hefur verið rofið.

Hafðu samband við lyfjafræðing ef lyfjapenninn stenst ekki allar þessar skoðanir.

2a. Veldu stungustað:

  • Ráðlagður staður er framan á lærum. Þú getur einnig notað neðri hluta kviðar, en ekki svæðið sem er 5 sentimetra í kring um naflann.
  • Veldu mismunandi stað í hvert skipti sem þú gefur þér inndælingu.
  • Ekki gefa lyfið í svæði þar sem húðin er aum, marin, rauð, flögnuð eða hörð. Forðist svæði með örum eða húðsliti. Ef þú ert með psoriasis skaltu EKKI sprauta beint í upphækkuð, þykk, rauð eða flagnandi húðsvæði eða meinsemdir („psoriasis meinsemdir á húð“).

2b. Umönnunaraðilar og heilbrigðisstarfsfólk eingöngu:

  • Ef umönnunaraðili eða heilbrigðisstarfsmaður gefur þér inndælinguna má einnig nota svæðið utanvert á upphandleggjum.

3. Stungustaðurinn hreinsaður:

  • Þvoðu þér um hendurnar með sápu og heitu vatni.
  • Hreinsaðu stungustaðinn með sprittþurrku með hringlaga hreyfingu. Láttu hann þorna áður en sprautað er.
  • Ekki snerta hreinsaða svæðið aftur áður en sprautað er.

Inndælingin:

4. Hettan fjarlægð:

  • Ekki fjarlægja hettuna fyrr en þú ert tilbúin/tilbúinn að nota lyfjapennann.
  • Snúðu hettuna af í áttina sem örvarnar vísa.
  • Farga skal hettunni. Ekki reyna að setja hettuna aftur á.
  • Notaðu lyfjapennann innan 5 mínútna frá því að hettan var tekin af.

5. Haldið á lyfjapennanum:

  • Haldið lyfjapennanum í 90°við hreinsaða stungustaðinn.

ÞÚ VERÐUR AÐ LESA ÞETTA FYRIR INNDÆLINGU.

Meðan á inndælingunni stendur munt þú heyra 2 háværa smelli.

Fyrri smellurinn gefur til kynna að inndælingin sé hafin. Nokkrum sekúndum síðar mun síðari smellurinn gefa til kynna að inndælingunni sé næstum lokið.

Þú verður að halda lyfjapennanum áfram þétt upp að húðinni þar til þú sérð grænan vísi fylla gluggann og hætta að hreyfast.

6. Inndælingin hafin:

  • Þrýstu lyfjapennanum þétt upp að húðinni til að hefja inndælinguna.
  • Fyrri smellurinn gefur til kynna að inndælingin sé hafin.
  • Haltu lyfjapennanum áfram þétt upp að húðinni.
  • Græni vísirinn sýnir framgang inndælingarinnar.

7. Inndælingunni lokið:

  • Hlustaðu eftir síðari smellinum. Hann bendir til þess að að inndælingunni sé næstum lokið.
  • Skoðaðu hvort græni vísirinn fylli gluggann og sé hættur að hreyfast.
  • Nú má fjarlægja lyfjapennann.

Eftir inndælinguna:

8. Skoðaðu hvort græni vísirinn fylli gluggann:

  • Það þýðir að lyfið hefur verið gefið. Hafðu samband við lækninn ef græni vísirinn er ekki sjáanlegur.
  • Það getur verið smá blóð á stungustaðnum. Þú getur þrýst bómullarhnoðra eða grisju yfir stungustaðinn og haldið í 10 sekúndur. Ekki nudda stungustaðinn. Þú getur sett lítinn plástur yfir stungustaðinn ef þörf krefur.

9. Förgun á Erelzi áfyllta lyfjapennanum:

  • Farga skal notuðum lyfjapenna í ílát fyrir beitta hluti (þ.e. stunguþolið, lokanlegt ílát, eða sambærilegt).
  • Reyndu aldrei að endurnota lyfjapenna.

Ef spurningar vakna

skaltu tala við lækni, hjúkrunarfræðing eða lyfjafræðing sem þekkir til Erelzi.